- Kvöldmatur
- Pasta
Rjómapasta með sítrónu og parmesan
Fljótlegt og ferskt pasta sem tekur styttri tíma en að panta pizzu.
- Undirbúningur
- 5 mín.
- Eldun
- 15 mín.
- Heildartími
- 20 mín.
- Skammtar
- 3–4 manns

@sillisitronudropi
Sjáðu Silla elda þetta
Stundum er auðveldara að sjá hlutina gerast. Horfðu á myndbandið og eldaðu með – uppskriftin er öll hér fyrir neðan líka.
Fylgdu Silla á TikTokHráefni
Fyrir 3–4 manns
Aðferð
Skref 1: Sjóddu pastað í vel söltuðu vatni samkvæmt leiðbeiningum. Taktu frá 1 dl af pastavatninu.
Skref 2: Bræddu smjörið á pönnu og steiktu hvítlaukinn í eina mínútu við vægan hita.
Skref 3: Bættu rjóma og sítrónuberki út í og láttu malla í 3–4 mínútur.
Skref 4: Settu pastað út í ásamt parmesan, sítrónusafa og smá pastavatni. Hrærðu þar til sósan verður silkimjúk.
Skref 5: Toppaðu með basilíku, meiri parmesan og nóg af pipar.